Ég held glaður jól

Kristinn Sigmundsson
Mótettukór Hallgrímskirkju
Björn Steinar Sólbergsson orgel
Stjórnandi: Hörður Áskelsson

Miðvikudagur 29. desember  kl. 20:00
Fimmtudagur 30. desember  kl. 17:00
Fimmtudagur 30. desember  kl. 20:00
motettukorinn_m

 

 

 

 
Jólatónleikar Mótettukórsins hafa í nærri þrjá áratugi verið fastur liður í aðventubyrjun í Hallgrímskirkju. Að þessu sinni verða tónleikar kórsins milli jóla og nýárs.  Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur með kórnum meðal annars lög sem hann flutti ásamt kórnum á metsöluplötunni „Ég held glaður jól“ frá árinu 1985.   Á efnisskrá verða jólasálmar, jólasöngvar og mótettur eftir Sweelinck, Hassler, Praetorius, Cornelius, Rutter, Scheidt, Mathias, Sigurð Flosason, Sigurð Sævarsson og fleiri.
Vegna tímasetningar tónleikanna gefst einstakt tækifæri á að gefa miða á tónleikana í jólagjöf og eru falleg gjafabréf með umslagi í boði í Hallgrímskirkju fyrir þá sem það vilja.

Miðaverð 3.500 / 2.500 fyrir listvini
Miðasala í Hallgrímskirkju og á Midi.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband