Orgeltónleikar í Ísafjarðarkirkju

IsafjardarkirkjaÞriðjudagskvöldið 15. desember klukkan 20.00 verða aðventutónleikar í Ísafjarðarkirkju. 
Þar mun einn besti orgelleikari landsins, Björn Steinar Sólbergsson leika á orgel kirkjunnar þekkt verk eftir Bach, Buxtehude, Balbastre og
D´Aquin.  Allt eru þetta barokkverk, sem tengjast aðventu og jólum. 

Aðgangseyrir er krónur eitt þúsund.  Ókeypis er fyrir börn og unglinga. 

Tónleikar þessir eru haldnir í tilefni þess að orgel Ísafjarðarkirkju hefur verið hreinsað og endurstillt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband