31.12.2015 | 12:21
Hátíđarhljómar um áramót
Á Gamlársdag verđa dregnir upp lúđrar og pákur og áramótin spiluđ inn ađ vanda viđ hrífandi orgelundirleik. Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Eggert Pálsson pákuleikari og Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari, sem leysir Hörđ Áskelsson af í ţetta sinn flytja glćsileg hátíđarverk m.a. eftir Vivaldi, Purcell, Bach og Albinoni. Ţessir gríđarlega vinsćlu tónleikar hefjast kl. 17.00. Ađgangseyrir er 3.500 krónur, hálfvirđi fyrir listvini.
Miđar á tónleikana fást á midi.is, í Hallgrímskirkju, s. 510 1000 og viđ innganginn.
Ţetta er í 23. sinn sem Listvinafélag Hallgrímskirkju býđur upp á tónleika undir yfirskriftinni Hátíđarhljómar viđ áramót. Áramótastemmningin byrjar međ hátíđarhljómum ţeirra félaga, enda njóta ţessir tónleikar gríđarlegra vinsćlda og hafa ţeir leikiđ fyrir fullu húsi á gamlárskvöld allt frá vígslu Klais orgelsins 1992. Björn Steinar Sólbergsson leysir Hörđ Áskelsson kantor Hallgrímskirkju af á ţessum tónleikum. Lúđraţytur og trumbursláttur hafa um aldir tengst hátíđum. Fyrirmyndir ţess má finna í elstu sálmabók kirkjunnar, Saltaranum, ţar sem Drottinn er lofađur međ bumbum og málmgjöllum. Lúđraköll fanfarar tengjast bćđi konunglegum lífvörđum og herkvađningum af ýmsum toga og í kirkjunni hafa ţessi hljóđfćri međal annars veriđ notuđ ţegar upprrisu Krists er fagnađ á páskum og međ dýrđarsöng englanna á Betlehemsvöllum.
Flest verkin eiga uppruna sinn á barokktímabilinu. Á efnisskránni eru fanfarar og hátíđleg tónlist. Međal ţeirra eru Forleikur ađ Te Deum eftir Charpentier (EBU lagiđ) Björn Steinar leikur hina ţekktu Tokkötu í d-moll eftir Bach. Ţá má ekki gleyma hinu frćga Adagio eftir Albinoni sem Ítalinn Giazotto umritađi.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.