Organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju.

StóriKlaisBjörn Steinar Sólbergsson er organisti Hallgrímskirkju og tónlistarstjóri kirkjunnar frá 1. júní 2021. Sóknarnefnd Hallgrímskirkju samþykkti að hann leiði tónlistarstarfið enda er hann heimamaður í kirkjunni, ásamt því að vera eftirsóttur konsertorganisti og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar.

 

Björn Steinar var ráðinn til Hallgrímskirkju sem organisti árið 2006. Hann stundaði tónlistar­nám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Framhaldsnám á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986.

Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum Norðurlöndunum, í Evrópu, Kanada og Norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfs­sonar hjá Skálholtsútgáfunni og Orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband