18.2.2025 | 13:29
NICOLAS DE GRIGNY AVE MARIS STELLA
Björn Steinar Sólbergsson orgel
Cantores Islandiae
Ágúst Ingi Ágústsson stjórnandi
Ókeypis aðgangur
Efnisskrá:
Hymni Ave maris stella
Nicolas De Grigny (1672 1703)
Ave Maris Stella
Plein jeu à 5
Fugue à 4
Duo
Dialogue sur les grands jeux
Á Boðunardegi Maríu sunnudaginn 17. mars kl. 17:00 verða stuttir tónleikar þar sem Björn Steinar Sólbergsson organisti Hallgrímskirkju flytur Ave Maris Stella eftir franska barokktónskáldið Nicolas De Grigny ásamt sönghópnum Cantores Islandiae sem syngja Gregorska hymnan Ave Maris Stella undir stjórn Ágústs Inga Ágústsonar.
Í beinu framhaldi verður sunginn aftansöngur úr bókinni Íslenskur TÍÐASÖNGUR.
Prestur er sr. Eiríkur Jóhannsson og forsöngvari er Ágúst Ingi Ágústsson.
Kl. 16 sama dag verður opin æfing þar sem aftansöngurinn verður kynntur og undirbúinn.
Nicolas de Grigny fæddist 1672 í Reims í Frakklandi. Hann fæddist inn í fjölskyldu tónlistarmanna. Faðir hans, afi og frændi störfuðu sem organistar við dómkirkjuna í Reims. Árin 1693 til 1695 starfaði hann sem organisti klausturkirkju Saint Denis í París. Samtímis stundaði Grigny nám hjá Nicolas Lebègue, eins af mikilvægustu barokktónskáldum Frakklands. Árið 1695 giftist Grigny Marie-Magdeleine de France, dóttur kaupmanns í París. Svo virðist sem hann hafi snúið aftur til heimabæjar síns skömmu síðar: heimildir um fæðingu fyrsta sonar hans benda til þess að de Grigny hafi þegar verið í Reims árið 1696. Hjónin eignuðst sex börn til viðbótar.
1697 var Grigny skipaður organisti Notre-Dame de Reims, hinnar frægu dómkirkju borgarinnar þar sem franskir ââkonungar voru krýndir.
Árið 1699 gaf tónskáldið út Premier livre d'orgue [sem inniheldur messu og helstu hymna stórhátíða kirkjunnar].
Grigny lést árið 1703, langt fyrir aldur fram aðeins 31 árs að aldri. Livre d'orgue var endurútgefin árið 1711 og varð þekkt víða um Evrópu, ma. afrituð af Johann Sebastian Bach og Johann Gottfried Walther.
Ave Maris Stella eða ´Heill þér hafsins stjarna´ eins og Matthías Jochumsson kvað er hymni frá miðöldum sem oftast er eignaður Bernard de Clairvaux. Hymninn skipar stórann sess í helgihaldi kaþólsku kirkjunnar við aftansöng og á hátíðisdögum Maríu guðsmóður.
Víxlflutningur (in alternatim)
Sú hefð að flytja kirkjusönginn in alternatim, eða til skiptis milli söngvara og orgels, varð hin viðtekna venja á 15.-17. öld á Ítalíu, Spáni, Niðurlöndum og í Frakklandi. Í stað þess að syngja allan texta tiltekins söngs í guðsþjónustunni var versunum skipt milli orgelsins og kórsins. Í raun var einfaldlega um að ræða útfærslu á hinum hefðbundna víxlsöng þar sem versum var skipt milli tveggja kóra eða milli kórs og forsöngvara. Notast var við þetta fyrirkomulag jöfnum höndum í messunni og tíðasöngnum en það var sérstaklega algengt við flutning á lofsöng Maríu. Tilgangurinn var að auka á fjölbreytileikann og draga úr einhæfni auk þess að hvetja til íhugunar. Þessi víxlflutningur gerði töluverðar kröfur til organistans sem þurfti að geta reitt fram fjölmörg spunnin tónverk á orgelið á milli hinna sungnu versa. Þannig gat organisti við tiltekna kirkju þurft að spinna allt að 100 tónverk á dag og hann gat þurft að spila um 400 guðsþjónustur á ári hverju. Þetta hafði í för með sér mjög hraða þróun í bæði spuna- og tónsmíðatækni, sem og orgelsmíði. Þessi hefð festi sig svo rækilega í sessi í kaþólsku kirkjunni að árið 1600 gaf Clemens VIII páfi út tilskipun þar sem beinlínis voru gefin fyrirmæli um að syngja skyldi tiltekna söngva in alternatim en einnig var kveðið á um það hvaða söngva mætti ekki flytja með þessu móti. Fyrirmæli páfa voru á þá leið að hljóðfæratónlistin skyldi auka við áhrif textans bæði þess texta sem tónlistin leysti af hólmi og þess sem sunginn var á móti. In alternatim hefðin var við lýði allt til upphafs 20. aldar þegar hún var alfarið lögð af með tilskipun Píusar X páfa árið 1903.
Tíðagjörð á sér fornar rætur í trúariðkun Gyðingdóms og kristni. Það er reglubundin bænagjörð sem byggir á Davíðssálmum og öðrum biblíulegum lofsöngvum og lestrum úr ritningunni.
Hér á landi hefur tíðagjörðin verið þekkt alla tíð. Í klaustrum, dómkirkjum og höfuðkirkjum. Eftir siðbót var tíðasöngur sunginn á biskupsstólum og latínuskólunum. Smám saman komu þó rímaðir sálmar við alþýðleg lög í stað lofsöngva biblíunnar.
Í tíðasöng heyrum við eins og nið aldannna, enduróm af bænum og söngvum kynslóðanna.
Aftansöngur á aðfangadag og á gamlárskvöld er hluti af þessari arfleifð.
Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands.
Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Framhaldsnám á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986.
Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum Norðurlöndunum, í Evrópu og Norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS.
Sönghópurinn Cantores Islandiae var stofnaður í Reykjavík haustið 2018 af Ágústi Inga Ágústssyni og Gísla Jóhanni Grétarssyni. Hópurinn leggur áherslu á gregorssöng í verkefnavali sínu en einskorðar sig þó ekki við hann. Stjórnandi kórsins er Ágúst Ingi, en hann hefur lagt stund á gregorssöng um nokkurt skeið. Ágúst Ingi starfaði sem organisti hjá kaþólsku kirkjunni í Hafnarfirði árin 1993-2000 og var stjórnandi gregorskórsins Cantores Iutlandiae í Danmörku árin 2011-2017. Meðal nýlegra verkefna Cantores Islandiae er fyrsti flutningur á Messe de Nostre Dame eftir 14. aldar tónskáldið Guillaume de Machaut með upprunahljóðfærum, Vespro della Beata Vergine eftir Claudio Monteverdi og hljóðritun á söng úr íslensku handriti frá 15. öld fyrir Stofnun Árna Magnússonar."
Tónlist | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2025 | 13:29
HÁTÍÐARHLJÓMAR VIÐ ÁRAMÓT
Gamlársdagur 31. desember 2023kl. 16
Verið velkomin á Hátíðarhljóma við áramót er við kveðjum gamla árið og tökum vel á móti hinu nýja.
Hátíðarhljómar við áramót á Gamlársdag hafa um árabil notið mikilla vinsælda í tónlistarlífi Hallgrímskirkju. Í ár gefst tónleikagestum kostur á að njóta hátíðlegara tóna fyrir orgel og trompet í ljósaskiptunum á síðasta degi ársins.
Flytjendur eru Jóhann Nardeau trompetleikari og
Björn Steinar Sólbergsson organisti í Hallgrímskirkju.
Sérstakir gestir: Ásgeir Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2025 | 13:28
Jólin með Bach. 2023
26. desember Annar í jólum kl. 17
Björn Steinar Sólbergsson, orgel Hallgrímskirkja
Björn Steinar flytur auk þess 6 sálmforleiki Bachs úr Litlu orgelbókinni Orgelbüchlein.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2023 | 11:47
Haderslev Domsogn Sommerkoncert fredag 7. juli 2023 kl. 16:30 - 17:15
Björn Steinar Sólbergsson er organist og musikdirektør ved Hallgrimskirken i Reykjavik. Björn Steinar begyndte sine musikstudier ved musikskolerne i Akranes og Reykjavik. Han fortsatte sine studier i Italien hos James E. Göettsche og i Frankrig på Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hos Susan Landale, hvor han afsluttede sine studier med en solisteksamen i orgelspil (Prix de virtuosité) i 1986. Han arbejdede som organist ved Akureyrarkirkja i 20 år, hvor han spillede en meget aktiv rolle for kirkens musikliv. Han har indspillet adskillige cder, bl. a. alle orgelværker af Páll Ísólfsson og Jón Leifs' orgelkoncert. I år spiller Björn Steinar koncerter i Island, Danmark og Tyskland.
Björn Steinar Sólbergsson spiller værker af Reger, Ísólfsson og Guilmant
Fri entré
Haderslev Domsogn Domkirkepladsen 3, 6100 Haderslev7452 3633post@hado.dk
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2023 | 11:20
Opnunartónleika Hallgrímskirkja sumarið 2023
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2023 | 11:14
Basilica Steinfeld, Germany. 18. Juni 2023 16:00 Uhr
INTERNATIONALER ORGELSOMMER 2023
Sonntag, 18. Juni 2023, 16 Uhr
Eröffnungskonzert des Orgelsommers
kloster-steinfeld.de
Björn Steinar Sólbergsson, Organist und Musikdirektor der Hallgrímskirkja in Reykjavík, wurde 1961 in Akranes im Westen Islands geboren. 1981 schloss er sein Studium an der National Church School of Music mit dem Hauptfach Orgel ab, bevor er ein Jahr in Rom bei James E. Goëttsche studierte.
Anschließend zog Björn Steinar nach Frankreich, wo er bei Susan Landale am Conservatoire National de Musique de Rueil Malmaison studierte und im Sommer 1986 den Prix de Virtuosité erhielt. Im selben Jahr wurde er zum Organisten der Akureyri-Kirche im Norden Islands ernannt, wo er sehr aktiv im Musikleben von Akureyri wurde.
Im Herbst 2006 wurde er zum Organisten der Hallgrímskirche in Reykjavík ernannt. Er unterrichtet außerdem Orgel an der National Church School of Music in Reykjavík und der isländischen Universität der Künste.
Björn Steinar spielt Orgelmusik aus allen Epochen, sowie isländische Orgelmusik und Arrangements skandinavischer Volkslieder und Tänze. Seine Aufnahmen von Orgel- und Chormusik wurden auf mehreren CDs veröffentlicht und im isländischen Staatsradio und Fernsehen ausgestrahlt.
Er erhielt den DV-Kulturpreis für das Jahr 1999, den isländischen Optimismus-Preis im Jahr 2001 und ist der Akureyri-Künstler des Jahres 2002. Künstler-Ehrengehalt in den Jahren 1999 und 2015.
Björn Steinar spielt Konzerte in ganz Europa, in den USA, Kanada und allen skandinavischen Ländern, und ist als Solist mit dem Isländischen Symphonieorchester, dem Akureyri Chamber Orchestra, dem Stavanger Symphony Orchestra und dem Cleveland Institute of Music Orchestra aufgetreten. Dieses Jahr wird Björn Steinar Konzerte in Island, Dänemark und Deutschland spielen.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2023 | 11:04
Benediktinerabtei Maria Laach, Germany Fr, 16. Juni 2023 19.00 Uhr
16. Juni 2023 19.00 Uhr, spielt Björn Steinar Solbergson aus Reykjavik / Island - der diesjährige Gastsolist, der die weiteste Reise auf sich nimmt ! Er ist Organist der berühmten Hallgrimskerkja in der Hauptstadt. Dauer: ca. 60 Minuten; Eintritt frei; Türkollekte. Herzliche Einladung !!
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2021 | 15:30
Orgóber í Keflavíkurkirkju - Björn Steinar 10. október kl. 17.00
Keflavíkurkirkja efnir til tónleikaraðar alla sunnudaga í október undir heitinu Orgober. Nýtt orgel var vígt formlega í hátíðarguðsþjónustu af prestum kirkjunnar og prófasti Kjalarnessprófastdæmis þann 2.október 2021.
Næstu sunnudaga á eftir verða tónleikar kl. 17 þar sem organistar Hallgrímskirkju, Dómkirkjunnar og Neskirkju munu leika valin orgelverk.
Björn Steinar Sólbergsson leikur sunnudaginn 10.október kl. 17.00
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2021 | 10:52
Haust í Hallgrímskirkju. 2. október 2021
Tónleikaröðin Haust í Hallgrímskirkju hóf göngu sína nú í september. Á öðrum tónleikum í röðinni laugardaginn 2. október 2021, munu þau Björn Steinar Sólbergsson organisti og Guja Sandholt, söngkona, flytja verk eftir Johann Sebastian Bach og Johann Crüger.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12:00 og standa í um hálfa klukkustund. Hægt er að fá miða við innganginn og á tix.is en miðaverð er 2000 krónur, ókeypis er fyrir börn, 16 ára og yngri.
Efnisskrá tónleikanna:
Johann Sebastian Bach 1685 1750
Schafe können sicher weiden, aría úr kantötu BWV 208
Johann Crüger 1598 1662
Þú sem líf af lífi gefur (texti: Hjálmar Jónsson)
Johann Sebastian Bach
Schmücke dich, o liebe Seele BWV 654
Vergnügte Ruh, beliebte Seelenlust, aria úr Kantötu BWV 170
Toccata í F-dúr BWV 540/I
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2021 | 14:28
Organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju.
Björn Steinar Sólbergsson er organisti Hallgrímskirkju og tónlistarstjóri kirkjunnar frá 1. júní 2021. Sóknarnefnd Hallgrímskirkju samþykkti að hann leiði tónlistarstarfið enda er hann heimamaður í kirkjunni, ásamt því að vera eftirsóttur konsertorganisti og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar.
Björn Steinar var ráðinn til Hallgrímskirkju sem organisti árið 2006. Hann stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Framhaldsnám á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986.
Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum Norðurlöndunum, í Evrópu, Kanada og Norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá Skálholtsútgáfunni og Orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)